Fyrir höfunda og útgefendur

Sendu okkur Word-skjalið. Við sjáum um allt hitt og bókin getur verið komin í sölu samdægurs.

Íslenskar námsbækur eru innan við eitt prósent af titlunum okkar en seljast margfalt á við erlendar. Nemendur leita að þeim á hverjum degi og finna þær ekki, því þær eru einfaldlega ekki til rafrænt.

Hvernig þetta virkar

1

Þú sendir Word-skjalið

Við þurfum ritvinnsluskjalið sjálft, ekki PDF. Í PDF er textinn fastur á síðunni og flæðir ekki eftir skjástærð, en rafbók þarf að laga sig að síma, spjaldtölvu og tölvu.

2

Við gefum bókina út

Við sjáum um umbrot yfir í epub, kápu, efnisyfirlit, uppsetningu í búðina og afhendingu til nemandans. Þér að kostnaðarlausu.

3

Þú gefur út reikning

Við sendum þér söluyfirlit og þú gefur út reikning eftir því. Þú ræður hversu oft, algengast er tvisvar á ári.

Nemandinn velur hvað hentar

Sama bók er í boði í fjórum útgáfum og nemandinn velur sjálfur. Flestir velja leigu út önnina frekar en að eignast bók sem þeir lesa einu sinni.

Aðgangur Hentar fyrir
90 dagar Stutt námskeið og lotunám
180 dagar Ein önn, langalgengasta valið
365 dagar Heilt skólaár eða tveggja anna námskeið
Til eignar Uppflettirit sem nemandinn heldur eftir námið

Skilmálar í stuttu máli

  • Engin einkasala. Þú mátt selja bókina hvar sem er annars staðar líka.
  • Engin uppsetningargjöld og enginn stofnkostnaður.
  • Engin binding. Þú getur tekið bókina úr sölu hvenær sem er.
  • Þú ræður verðinu eða við gerum tillögu út frá sambærilegum titlum.
  • Þú átt réttindin áfram, við erum eingöngu söluaðili.
  • Prent- og afritunartakmarkanir eru ákveðnar af þér.

Algengar spurningar

  • Hver á rafrænan útgáfurétt á bókinni minni?

    Við gerum enga kröfu til hans. Rétturinn er þinn og verður það áfram. Við eignumst hann ekki, hvorki að hluta né tímabundið, og við förum ekki fram á einkarétt af neinu tagi. Við erum söluaðili, ekki útgefandi í þeim skilningi.

    Það eina sem þarf að vera á hreinu er að þér sé heimilt að láta gefa bókina út rafrænt hjá okkur. Ef bókin hefur áður komið út hjá öðrum útgefanda getur verið að hann fari með rafræna útgáfuréttinn. Margir eldri útgáfusamningar fjalla eingöngu um prentaða útgáfu, og þá haldast rafrænu réttindin yfirleitt hjá höfundi, en það er misjafnt. Það mál er milli þín og útgefandans og kemur okkur ekki við, en við þurfum að vita að það sé í lagi áður en bókin fer í sölu.

    Ef þú ert ekki viss skaltu hafa samband og við aðstoðum við að komast að því.

  • Ég á bara PDF af bókinni. Dugar það?

    Nei, við tökum ekki við PDF. Í PDF er textinn fastur á blaðsíðu og flæðir ekki eftir skjástærð, svo bókin yrði nánast ólæsileg í síma. Við þurfum ritvinnsluskjalið sjálft. Ef það er hvergi til hjá þér er oft hægt að fá það hjá útgefandanum eða þeim sem sá um umbrotið á sínum tíma.

  • Hvað kostar þetta mig?

    Ekkert fyrirfram. Við berum kostnaðinn við umbrot og uppsetningu og fáum hlutdeild af sölu. Ef bókin selst ekki hefurðu ekkert lagt út nema skjalið.

  • Hvað tekur langan tíma að koma bókinni í sölu?

    Venjuleg bók fer í sölu samdægurs eða daginn eftir. Flóknara umbrot, til dæmis mikið af töflum, formúlum eða myndefni, getur tekið nokkra daga.

  • Ég er með nýrri útgáfu en þið eruð með. Hvað geri ég?

    Sendu okkur nýju útgáfuna og við skiptum um. Það er engum til góðs að nemendur kaupi úrelta útgáfu hjá okkur.

  • Hvernig veit ég hvað hefur selst?

    Þú færð söluyfirlit fyrir hvert uppgjörstímabil með fjölda seldra eintaka, skiptingu milli leigu og eignar og upphæðum. Reikningurinn er svo gefinn út eftir því yfirliti.

  • Er hægt að vernda bókina gegn afritun?

    Já. Bækurnar eru afhentar í gegnum Bookshelf frá VitalSource, sem er notað af háskólum um allan heim. Þú ákveður hversu mikið má prenta og afrita.

Viltu heyra meira?

Sendu okkur línu og við svörum yfirleitt samdægurs. Það er allt í lagi að spyrja fyrst og ákveða seinna.