Skilmálar Rafbókarinnar sf. fyrir rafbokin.is
1. Almennar upplýsingar
Rafbókin sf., kt. 560425-0900 („við“), rekur rafbokin.is.
Skráning: https://www.skatturinn.is/fyrirtaekjaskra/leit/kennitala/5604250900
Netfang: rafbokin@rafbokin.is | Starfsstöð: Reykjavík, Ísland.
2. Kaup og afhending
-
Rafbækur eru afhentar strax eftir greiðslu.
-
Til lesturs þarf að samþykkja skilmála VitalSource (https://www.vitalsource.com/terms og https://support.vitalsource.com/hc/en-us/articles/28012656781847-CA-Disclosure-Support-Page) og nota Bookshelf-forritið. Rafbokin.is stofnar aðgang með netfangi notanda hjá VitalSource.
-
Ef bók er keypt til eignar ber notandi að hlaða henni niður innan fimm árum frá kaupum.
3. Greiðsluleiðir
Greitt er með kreditkorti, Aur eða Netgíró. Sérstakar takmarkanir greiðsluveitna geta átt við.
4. Endurgreiðslur
-
Þú getur afpantað kaup innan 14 daga að því marki sem bókin hefur ekki verið opnuð/skoðuð. VitalSource staðfestir hvort bók hafi verið opnuð; endurgreiðsla fæst aðeins að þeirri staðfestingu.
-
Skilaréttur fellur niður strax og bókin er opnuð, sbr. neytendakaupalög um stafrænt efni.
5. Takmarkanir og notkunarréttur
-
Takmarkanir (fjöldi tækja, prentun o.s.frv.) er mismunandi eftir bók, sjá á vöruspjaldi á bókar.
-
Brot á takmörkunum eða skilmálum VitalSource getur leitt til lokunar aðgangs.
6. Persónuvernd og meðferð gagna
-
Geymd gögn: netfang og, ef gefið, skóli, námsbraut, önn. Netfang er deilt með VitalSource; engar aðrar upplýsingar eru deildar með þriðju aðilum.
-
Gögn eru geymd meðan notandareikningur er virkur. Notandi getur eytt aðgangi sínum; þá eyðast gögn hans. Bókhaldsgögn eru þó geymd eins og lög krefjast.
-
Vefurinn notar engar kökur.
7. Þjónusta og samskipti
Hafðu samband á https://rafbokin.is/samband eða rafbokin@rafbokin.is. Við svörum eins fljótt og unnt er.
8. Breytingar á skilmálum
Við áskiljum okkur rétt til að breyta skilmálum hvenær sem er. Breytingar eru tilkynntar í tölvupósti áður en þær taka gildi.
9. Ábyrgð og ábyrgðartakmörkun
-
Við berum enga ábyrgð á truflunum í þjónustu VitalSource, tjóni sem hlýst af rangri notkun Bookshelf eða ef VitalSource hættir starfsemi og/eða samband okkar rofnar.
-
Rafbækur eru afhentar „eins og þær eru“ án frekari ábyrgðar Rafbókarinnar.
10. Lögsaga og ágreiningur
Skilmálarnir lúta íslenskum lögum. Ágreining skal reyna að leysa í sátt; takist það ekki má leggja mál fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur.
11. Túlkun skilmála
Rafbókin sf. áskilur sér rétt til endanlegrar túlkunar á þessum skilmálum.