Persónuverndarstefna Rafbókarinnar sf.
1. Um okkur
Rafbókin sf., kt. 560425-0900, rekur vefverslunina rafbokin.is og ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem hér eru tilgreindar. Hægt er að hafa samband á samband@rafbokin.is.
2. Hvaða gögn eru skráð
Við söfnum eftirfarandi upplýsingum þegar notandi skráir sig og kaupir bók:
-
Netfang (skyldugrein)
-
Skóli, námsbraut og önn (ef notandi gefur það upp)
3. Notkun og miðlun gagna
-
Netfang notanda er deilt með VitalSource til að stofna aðgang að bókum.
-
Engar aðrar upplýsingar eru deildar með þriðju aðilum.
-
Engar vefkökur eru notaðar á rafbokin.is.
4. Geymsla gagna
-
Persónuupplýsingar eru geymdar á meðan notandi hefur virkan aðgang á rafbokin.is.
-
Notandi getur óskað eftir að eyða sínum aðgangi, og þar með eru öll gögn hans hjá Rafbókinni eytt.
-
Gögn sem skráð eru hjá VitalSource lúta þeirra persónuverndarstefnu.
-
Bókhaldsgögn eru geymd í samræmi við íslensk lög um bókhald og skattaskil.
5. Réttindi notenda
Notendur eiga rétt á:
-
Aðgangi að eigin gögnum
-
Að óska eftir leiðréttingu eða eyðingu
-
Að afturkalla samþykki
-
Að leggja fram kvörtun til Persónuverndar (www.personuvernd.is)
6. Öryggi
Við gerum viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að tryggja öryggi þeirra gagna sem við vinnum með.