Hvernig getum við aðstoðað?
Svör við algengum spurningum um rafbækur, Bookshelf og kvittanir.
Byrja að lesa
Eftir kaup 3 skref
-
1Finndu kóðann
Þú finnur kóðan undir aðganginum þínum og færð póst með aðgangskóða innan nokkurra mínútna. -
2
-
3Innleystu kóðann
Smelltu á "Redeem Code" og sláðu inn kóðann.
Aðgangsform
Þú getur lesið bækurnar þínar á marga vegu:
- Vafri – rafbokin.vitalsource.com
- Windows / Mac – Bookshelf app
- iOS – App Store
- Android – Google Play
Allar glósur, bókamerki og framvinda samstillast sjálfkrafa á milli tækja.
Hvernig innleysi ég kóða á hverju tæki?
-
- Farðu á rafbokin.vitalsource.com
- Skráðu þig inn eða smelltu á "Create Account" ef þú ert nýr
- Smelltu á "Redeem Code" efst á síðunni
- Sláðu inn kóðann úr tölvupóstinum og smelltu á "Redeem"
- Bókin birtist á bókahillunni þinni!
-
Mikilvægt: Ekki er hægt að innleysa kóða beint í iOS appinu. Þú verður að innleysa kóðann fyrst á vefnum.
- Opnaðu Safari og farðu á rafbokin.vitalsource.com
- Skráðu þig inn eða búðu til aðgang
- Smelltu á "Redeem Code" og sláðu inn kóðann
- Sæktu síðan Bookshelf appið úr App Store
- Skráðu þig inn með sama aðgangi – bókin bíður þín!
-
- Sæktu Bookshelf appið úr Google Play
- Opnaðu appið og skráðu þig inn eða búðu til aðgang
- Smelltu á valmyndina (☰) og veldu "Redeem Code"
- Sláðu inn kóðann og smelltu á "Redeem"
- Bókin birtist á bókahillunni!
-
Mikilvægt: Ekki er hægt að innleysa kóða beint í MacOs appinu. Þú verður að innleysa kóðann fyrst á vefnum.
Kvittanir og endurgreiðslur
Stéttarfélög
-
1Sæktu kvittun
Farðu á Mínar síður og smelltu á "Sækja kvittun". -
2Sendu til stéttarfélags
Sendu kvittunina inn á vef stéttarfélagsins. -
3Fáðu endurgreiðslu
Endurgreiðsla berst yfirleitt innan nokkurra daga.
Algeng stéttarfélög
Þessi stéttarfélög endurgreiða oft námsbækur:
- VR – Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
- Efling
- BHM – Bandalag háskólamanna
- SFR – Starfsmannafélag ríkisins
- Samiðn
Bookshelf lesforritið
VitalSource Bookshelf er lesforritið sem við notum til að afhenda rafbækur. Það er ókeypis og virkar á öllum tækjum.
📖 Helstu eiginleikar
- Merkingar og glósur – Merktu texta með litum og bættu við glósum
- Leitarvél – Leitaðu í allri bókinni
- Flashcards – Búðu til spurningaspjöld fyrir próf
- Upplestur – Láttu forritið lesa upp (Read Aloud)
- Aðgengi – Breyttu leturstærð, lit og línubili
- Tilvísanir – MLA, APA, Harvard, Vancouver snið
- Offline lestur – Lestu án nettengingar
🖨️ Prentun og afritun
| Prentun á tímabili | oft ~10 blaðsíður |
| Prentun samtals | oft ~100 blaðsíður |
| Afritun texta | oft ~10% af bók |
Takmarkanir eru mismunandi og birtast í "Nánar um bókina" á hverri bók.
📱 Sækja forritið
- Vafri: rafbokin.vitalsource.com
- iOS: App Store
- Android: Google Play
- MacOS: Sækja
- Windows: Microsoft Store
🔧 Vandamál og lausnir
Bókin birtist ekki?
- Ertu skráð/ur inn á réttan aðgang?
- Hefur þú innleyst kóðann?
- Prófaðu að útskrá þig og innskrá í Bookshelf
Rangur aðgangur?
Ef þú settir bókina á rangan aðgang, sendu póst á support@vitalsource.com og biddu þá um að sameina aðganga.
Kennslumyndbönd
Stuttar leiðbeiningar um helstu eiginleika Bookshelf.
Fleiri myndbönd á support.vitalsource.com
Algengar spurningar
-
Hversu lengi gildir aðgangur að bók?
Það eru tvær tegundir:
- Leiga – Aðgangur hefst þegar þú innleysir kóðann, ekki þegar þú kaupir.
- Eign – Þú átt bókina að eilífu, en þú verður að sækja hana innan 5 ára.
-
Get ég lesið án nettengingar?
Já! Sæktu Bookshelf forritið og halaðu bókinni niður. Eftir það getur þú lesið hvar sem er.
-
Af hverju hef ég ekki aðgang að
bókinni?
Oftast eru 2 ástæður:
- Kóðinn ekki innleystur – Farðu á rafbokin.vitalsource.com, skráðu þig inn og smelltu á "Redeem Code".
- Rangur aðgangur – Ertu skráð/ur inn á sama netfang og þú notaðir við kaup? Ef bókin er á öðrum aðgangi, sendu póst á support@vitalsource.com og biddu um sameiningu.
-
Af hverju get ég ekki prentað meira?
Útgefendur setja takmarkanir á prentun og afrit til að vernda höfundarrétt. Við stjórnum þessu ekki – takmarkanirnar koma frá útgefandanum.
-
Get ég fengið endurgreiðslu?
Ef þú hefur ekki innleyst kóðann geturðu fengið fulla endurgreiðslu. Farðu inn á aðganginn þinn og afgreiddu þig sjálf(ur) með því að smella á "Skila bók" undir kaupunum.
-
Hvernig fæ ég kvittun?
Farðu á Mínar síður og smelltu á "Sækja kvittun" við pöntunina. Kvittunin er á PDF og hentar fyrir stéttarfélag eða skattframtal.
-
Hvernig bý ég til tilvitnun?
Innan Bookshelf finnurðu tilvitnunareiginleika í efnisyfirlitinu. Smelltu á (⋯) táknið efst til hægri og veldu "Citation". Hægt er að velja MLA, APA, Harvard eða Vancouver snið.
Þarftu meiri aðstoð?
Við svörum öllum fyrirspurnum, yfirleitt innan nokkurra klukkustunda.