Stjórnarskráin, Mannréttindasáttmáli Evrópu og meginreglur refsiréttar
Kaup valmöguleikar
Í bókinni er fjallað um 1. mgr. 68. og 1. mgr. 69. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og varpað ljósi á samspil þeirra og ákvæða 3. og 7. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu. Uppbygging bókarinnar er með þeim hætti að í fyrsta hluta hennar, kafla 2, er vikið almennum orðum að réttarheimildafræðilegu samspili stjórnarskrárinnar og Mannréttindasáttmála Evrópu. Í öðrum hluta, köflum 3-11, er fjallað um bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í 1.
mgr. 68. gr. stjskr. og 3. gr. MSE. Því næst er í þriðja hluta, köflum 12-16, vikið að grundvallarreglunni um lögbundnar refsiheimildir í 1. mgr. 69. gr. stjskr. og 7. gr. MSE. Í fjórða hluta ritsins, köflum 17-20, er fjallað um regluna um bann við afturvirkni refsilaga og loks er í fimmta hluta, köflum 21-27, gerð ítarleg grein fyrir grundvallarreglunni um skýrleika refsiheimilda sem á sér stoð í sömu ákvæðum.
Nánar um bókina
- Rafbókin Publishing
- 9789935508126
- 9789979825760
- Page Fidelity (PDF)
- 1
- Róbert Spanó
- Icelandic
- 01/2013
- 100
- 10
- 10