Samningaréttur
Kaup valmöguleikar
Í þessari bók er gefið yfirlit um meginatriði íslensks samningaréttar. Bókin skiptist í fjóra höfuðþætti; Í fyrsta hluta hennar eru hugtök skýrð og m.a. fjallað um nokkrar meginreglur samningaréttarins, svo og um túlkun samninga og annarra löggerninga. Í öðrum hluta bókarinnar eru kaflar um skyldu til samningsgerðar, þriðjamannslöggerninga, staðlaða samningsskilmála og samninga við opinbera aðilja.
Í þriðja hluta er fjallað um milligöngu við samningsgerð, og í fjórða hluta um atriði, er geta valdið ógildi löggerninga. Bókin er einkum ætluð til kennslu við lagadeild Háskóla Íslands, en auk þess hentar hún vel sem handbók fyrir starfandi lögfræðinga og aðra, sem fást við samningsgerð. Ítarlegar laga-, dóma- og atriðisorðaskrár auðvelda notkun bókarinnar.
Nánar um bókina
- Rafbókin Publishing
- 9789935508188
- 9789979825014
- Page Fidelity (PDF)
- 1
- Páll Sigurðsson
- Icelandic
- 01/1987
- 100
- 10
- 10