Markaðssvik
Kaup valmöguleikar
Bókin hefur að geyma heildstæða umfjöllun um löggjöf sem gildir um markaðssvik. Í henni er vikið að ástæðum þess að löggjöfin er svona ströng, hvaða hagsmuni henni er ætlað að vernda og hvernig hún hefur þróast innan Evrópusambandsins og hér á landi fyrir og eftir bankahrunið haustið 2008. Fjallarð er um öll grundvallarhugtök á þessu sviði og útskýrt hvað þau fela í sér. Vikið er að þeim dómum sem hafa gengið hjá Evrópudómstólnum og hvaða áhrif þeir hafa haft á réttarþórunina í Evrópu og hér á landi.
Markmiðið með bókinni er að auðvelda þeim sem vinna á og í tengslum við markaði með fjármálagerninga að tileinka sér þetta regluverk og þar með starfa í takt við það. Hún er hugsuð fyrir fjárfesta, starfsmenn fjármálafyrirtækja, eftirlitsaðila, lögmenn, dómara, endurskoðendur, fjölmiðla, laganema og aðra sem vinna með regluverkið á einn eða annan hátt.
Nánar um bókina
- Rafbókin Publishing
- 9789935508171
- 9789935508171
- Page Fidelity (PDF)
- 1
- Aðalsteinn E. Jónasson
- Icelandic
- 02/2017
- 100
- 10
- 10