Hagræn áhrif ritlistar

Höfundur: Ágúst Einarsson (Útgáfa: 2)
Hagræn áhrif ritlistar

Kaup valmöguleikar

Hagræn áhrif ritlistar eftir dr. Ágúst Einarsson prófessor er fyrsta bókin sem kemur út á íslensku um hagfræði ritlistar. Ritlist er einn mikilvægasti þátturinn í menningu okkar. Mikil efnahagsleg umsvif eru tengd ritlist og er meðal annars fjallað um þau í bókinni auk þess sem rakin er þróun ritlistar hérlendis og erlendis. Í bókinni er fjallað um virði, eftirspurn og framboð innan ritlistar, útgáfu og bókasöfn.

Jafnframt er rætt um höfundarétt, hlutverk stjórnvalda og opinber framlög til þátta sem tengjast ritlist en þau eru fátækleg og mikilvægt að bæta úr því. Einnig er gerð grein fyrir markaðs- og fjármálum sem og atvinnuþátttöku í tengslum við útgáfumál. Framlag ritlistar til landsframleiðslu er metið en það er umtalsvert. Íslendingar standa vel á alþjóðavísu í útgáfumálum en lesskilningi barna og unglinga er ábótavant og brýnt að snúa þeirri þróun við.

Í bókinni eru lagðar fram tíu rökstuddar, stefnumótandi tillögur til að efla ritlist hérlendis. Þær tillögur skila sér í betri lífskjörum og þar með auknum tekjum fyrir opinbera aðila í framtíðinni. Áhrif ritlistar koma ekki síst fram í mikilvægi hennar fyrir menningu þjóðarinnar og sem hluti af menningararfi okkar eru þau gríðarleg. Reyndar er ritlist ein af forsendum fyrir tilvist Íslendinga sem sjálfstæðrar þjóðar.

Nánar um bókina

Útgefandi
Rafbókin Publishing
ISBN
9789935204042
Print ISBN
9789935204042
Format
ePub
Útgáfa
2
Höfundar
Ágúst Einarsson
Tungumál
Icelandic
Útgefið
12/1/2020
Prent takmörkun á líftíma
100
Prent takmörkun
10
Afritunar takmörkun
10

Kaflar

  • Formáli
  • 1. Ritlist sem hluti lista og menningar
  • 2. Eftirspurn
  • 3. Framboð
  • 4. Útgefið efni og bókasöfn
  • 5. Regluverk, hlutverk stjórnvalda og félagskerfi
  • 6. Markaðssetning og fjármál
  • 7. Útgefendur, sala og framlag til landsframleiðslu
  • 8. Niðurstöður og framtíðarhorfur
  • Skrá yfir myndir og töflur
  • Nafnaskrá
  • Atriðaorðaskrá
  • Heimildaskrá