Þrjú skref · 2 mín 50 s

Hvernig virkar þetta?

Þú kaupir bókina hér, færð kóða í pósti og opnar hana í Bookshelf. Hér sérðu allt ferlið.

  1. Skref 1

    Kaupa

    Leitaðu að bókinni, settu hana í körfuna og borgaðu með korti eða Aur. Kóðinn birtist strax og kemur líka í pósti.

  2. Skref 2

    Opna kóðann

    Skráðu þig inn á bok.rafbokin.is með sama netfangi og þú keyptir með, ýttu á Redeem Code og límdu kóðann.

  3. Skref 3

    Lesa

    Lestu í tölvu, síma eða spjaldtölvu. Merktu, skrifaðu athugasemdir og láttu lesa upphátt. Bókin opnast þar sem þú hættir.

Gott að vita

  • Leigan telur frá innlausn. Tíminn byrjar þegar þú leysir kóðann út, ekki þegar þú kaupir.
  • Sama netfang. Notaðu sama netfang í Bookshelf og þú notaðir við kaupin.
  • Leystu kóðann út á vefnum. Bookshelf appið í iPhone, iPad og Mac getur það ekki. Gerðu það á bok.rafbokin.is, lestu svo hvar sem er.